Skilmálar

Upplýsingar um seljanda
Avery ehf – kt. 560322-1190  VSK númer: 145455

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða á vefsíðunni okkar með debet/kredit í gegnum greiðslusíðu Valitor. Einnig er hægt að millifæra.

Afhending vöru
Pantanir eru afgreiddar um leið og greiðsla hefur borist eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. SAWE ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá SAWE til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Pantanir eru sendar á næsta pósthús.

Verð
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. SAWE áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og hætta við pantanir vegna fyrirvaralausra verðbreytinga og vegna prentvillna í vefverslun. 

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Vefkökur
Vefspor, eða vafrakökur, eru notaðar á vef Sawe til að telja og greina heimsóknir á vefinn. Vefspor geta innihaldið persónugreinanlegar upplýsingar. Sawe leitast við að nota þessa aðferð sparlega og með ábyrgum hætti. Notendur vefsins geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af þessum sporum eða hafni þeim með öllu. Með því að samþykkja notkun vefspora heimilar notandi Sawe að vinna upplýsingar um notkun hans á vefnum.

Sawe notar Google Analytics, Siteimprove Analytics og Hotjar til vefmælingar.

 

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hafa samband
Símanúmer: 660 7267
Netfang: teymid@sawe.is
Heimilisfang: Laugarvegur 39, 101 Reykjavík

Karfan þín
Allar vörur
0 items Karfan þín