Vandlega hannaðar vörur sem gera daglega rútínu einfaldari, þægilegri og ánægjulegri.
Dýpri hreinsun alla daga
um sawe
Við bjóðum uppá tannhvíttunar og tannheilsuvörur sem eru þróaðar eftir háum gæðastöðlum.
Vörurnar okkar eru þróaðar með tannlæknum í Ungverjalandi eftir háum öryggiskröfum og gæðastöðlum, þær eru einnig gæðavottaðar af FDA (Food and Drug Administration.)
Brosið þitt. Þín rútína
Engin tvö bros eru eins.
Við hjálpum þér að finna réttu vörurnar fyrir þína tannhirðu, þín markmið og þína daglegu rútínu.
Algengar spurningar
Það fer eftir því hvað þú vilt fá út úr rútínunni þinni. Fyrir tannhvíttun heima eru tannhvíttunarsettin góður upphafspunktur. Fyrir daglega umhirðu og styrkingu glerungs hentar nHAp serum vel. Toner og fjólublátt tannhvíttunarpúður henta síðan þegar markmiðið er að draga sjónrænt úr gulum tónum og gefa brosinu bjartara yfirbragð.
Já. SAWE vörurnar eru hugsaðar sem hluti af heildstæðri tannhirðurútínu. Þú getur til dæmis sameinað tannhvíttun með nHAp serum til daglegrar umhirðu og notað toner eða aðrar viðhaldsvörur til að halda brosinu björtu.
Það fer eftir vörunni og notkun. Fjólubláar litaleiðréttandi vörur gefa sjónræn birtuáhrif strax eftir notkun, á meðan tannhvíttunarsettin eru ætluð til að gefa sýnilegri breytingu með reglulegri notkun.
Já. Vörurnar eru hannaðar með einfalda heimarútínu í huga. Tannhvíttunarsettin sameina gel og LED munnstykki og daglegar vörur falla auðveldlega inn í hefðbundna tannhirðu.
nHAp serumið er sérstaklega hannað til að styðja við glerung og draga úr tannnæmi. Ef þú ert með mikið tannnæmi, tannholdsvandamál eða ómeðhöndlaðar tannskemmdir er hins vegar ráðlagt að fá ráðleggingar tannlæknis áður en tannhvíttun er hafin.
Góð dagleg tannhirða skiptir mestu máli. SAWE býður einnig upp á vörur sérstaklega ætlaðar til viðhalds, meðal annars gel-áfyllingar, toner og aðrar vörur sem passa inn í rútínuna eftir tannhvíttun.